Fjórar flóttafjölskyldur fara til Fjarðabyggðar

Þeir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, og Ásmundur Einar Daðason, …
Þeir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, og Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, undirrita samninginn. Ljósmynd/Velferðarráðuneytið

Undirritaður var samningur milli Fjarðabyggðar og velferðarráðuneytisins í dag um móttöku fjögurra flóttafjölskyldna frá Írak sem væntanlegar eru til landsins og munu setjast að í Fjarðabyggð.

Undirbúningur að móttöku fólksins hefur staðið yfir um nokkurt skeið í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNCHR) og fór sendinefnd til Jórdaníu í nóvember síðastliðnum, m.a. til að veita fólkinu fræðslu um Ísland, íslenskt samfélag og réttindi og skyldur að því er fram kemur í frétt á vef Stjórnarráðsins. Er þetta í annað sinn sem Fjarðabyggð tekur á móti flóttafólki, en árið 1999 tók sveitarfélagið á móti hópi flóttafólks frá Kosovo.

Samningurinn var undirritaður af þeim Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og jafnréttismálaráðherra, og Páli Björgvini Guðmundssyni, bæjarstjóra Fjarðabyggðar.

Sveitarfélagið hefur undirbúið móttöku fólksins í nánu samstarfi við velferðarráðuneytið og Rauða krossinn á Íslandi. Samningurinn sem undirritaður var í dag lýtur að móttöku, aðstoð og stuðningi við fjölskyldurnar fjórar á næstu tveimur árum. Alls eru þetta nítján einstaklingar, þar af 10 börn en tvö þeirra eru eldri en 18 ára.

Haft var eftir Ásmundi Einari við undirritunina að hann væri þakklátur Fjarðabyggð fyrir vandaðan undirbúning að mikilvægu verkefni: „Það er mikið í húfi að vel sé tekið á móti þessu fólki sem svo margt hefur reynt og þolað, að það finni sig velkomið og fái sem bestan stuðning til að fóta sig í samfélaginu og öðlast gott líf hér á landi,“ sagði ráðherra.

Auk fjölskyldnanna sem væntanlegar eru til Fjarðabyggðar er von á 33 einstaklingum til landsins sem koma hingað í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Fyrir liggja drög að samningi við Mosfellsbæ um móttöku tíu manna hóps flóttafólks frá Úganda og drög að samningi við Ísafjarðarbæ í samstarfi við Súðavíkurhrepp og Bolungarvíkurkaupstað vegna móttöku 23 einstaklinga frá frá Sýrlandi og Írak.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert