Lið Fjölbrautaskólans í Garðabæ (FG) er komið í undanúrslit í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, eftir sigur á Verzlunarskóla Íslands í fyrstu viðeign 8-liða úrslita keppninnar.
FG sigraði eftir spennandi keppni með 39 stigum gegn 32, en staðan var jöfn mestan hluta viðureignarinnar.
Næsta föstudag munu lið Kvennaskólans og Menntaskólans á Egilsstöðum mætast. Keppnin fer fram í beinni útsendingu á Rúv.
FG er fyrsti skólinn sem tryggir sér sæti í undanúrslitum sem fara fram 15. og 16. mars.