Lögmenn Alberts Klahn Skaftasonar, Kristjáns Viðars Júlíussonar og Tryggva Rúnars Leifssonar eru allir ánægðir með kröfu setts saksóknara í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu að sakborningar og skjólstæðingar þeirra í málinu verði sýknaðir.
„Það var í sjálfu sér ekki við neinu öðru að búast eftir að öll sönnunargögnin komu í ljós,“ segir Guðjón Ólafur Jónsson, lögmaður Alberts. Hann hlaut eins árs fangelsisdóm fyrir Hæstarétti en hann var ákærður fyrir að tálma rannsókn.
Guðjón mun taka heilshugar undir kröfu ríkissaksóknara en bendir á að hann eigi eftir að fara yfir greinargerðina sem Davíð Þór Björgvinsson, fulltrúi ákæruvaldsins í endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálsins og settur ríkissaksóknari, skilaði til Hæstaréttar í dag. Hún er í heildina tæpar 80 blaðsíður.
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Kristjáns Viðars, tekur í sama streng og lýsir yfir ánægju með kröfu setts saksóknara í málinu fyrir hönd skjólstæðings síns. Kristján Viðar var ákærður fyrir að bana Geirfinni og hlaut sextán ára fangelsisdóm.
„Ég lít svo á að þó að það verði að afgreiða þetta með réttu formi og á réttan hátt þá er réttinum ekki einu sinni heimilt að gera annað en það sem saksóknarinn krefst,“ segir Jón Steinar og bætir við: „Þetta er stór áfangi í því að leiðrétta þessa ranglátu dóma sem gengu á þessum tíma.“
Jón Magnússon, lögmaður Tryggva Rúnars, segir að sýknukrafan komi ekki á óvart. „Einhvern tímann hlutu menn nú að sjá ljósið í sambandi við þetta,“ segir Jón, en að hans mati er málið í heild sinni eitt það ljótasta í íslenskri réttarsögu.
Hann segir að æskilegt hefði verið að brjóta málið upp fyrir „mörgum áratugum síðan“ en því miður hafi það ekki gerst.
„Það er meðal annars vegna þess að það hafa ýmsir aðilar átt heiður að verja, sem jafnvel gegndu háum stöðum í réttarkerfinu,“ segir Jón.