Stjórnvöld leysi húsnæðisvandann

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. mbl.is/Kristinn Magnússon

Miðstjórn ASÍ krefst þess að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og Alþingi axli nú þegar ábyrgð á að leysa húsnæðisvandann með raunhæfum aðgerðum.

„Húsnæðismál launafólks eru í algjörum ólestri. Stöðugt fleiri þurfa að reiða sig á óöruggan leigumarkað og nota stóran hluta launa sinna til að borga okurleigu. Þessi staða bitnar verst á þeim sem standa höllum fæti fyrir. Þetta er fátækragildra,“ segir í ályktun miðstjórnar ASÍ.

Þar kemur fram að tryggja verði fjármögnun vegna að minnsta kosti 1.000 íbúða á ári til leigufélaga sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni og setja reglur sem treysti rétt leigjenda.

Einnig verði að aðstoða ungt fólk og aðra sem vilja eignast eigin húsnæði með eflingu vaxta- og húsnæðisbótakerfisins og hagkvæmara húsnæðislánakerfi á forsendum heimilanna.

Húsnæðisöryggi eigi að vera sjálfsögð mannréttindi en ekki forréttindi.

„Aðildarfélög ASÍ settu húsnæðismálin á oddinn við gerð síðustu kjarasamninga með nokkrum árangri. Nú liggur hins vegar fyrir að stjórnvöld ætla að svíkja þau loforð sem þá voru gefin því það vantar 600 milljónir króna á ári til að hægt verði að byggja það sem lofað var. Ekki stendur til að mæta þessu ef marka má fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára,“ segir í ályktuninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert