Krefjast úrbóta á atkvæðagreiðslu

Frá Langanesbyggð.
Frá Langanesbyggð. mbl.is/Kristinn

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga telur óásættanlegt að skortur á þjónustu af hálfu sýslumanna verði til þess að draga úr kjörsókn í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Stjórnin gerir þá kröfu til dómsmálaráðuneytisins og sýslumannsembætta að þau tryggi að skipulag utankjörfundaratkvæðagreiðslu henti íbúum í hverjum landshluta, án þess að þeir þurfi að ferðast um langan veg, að því er segir í tilkynningu.

„Stjórn sambandsins fjallaði á fundi sínum í dag um ályktun sveitarstjórnar Langanesbyggðar, þar sem hún mótmælir harðlega þeirri mismunun sem kjósendur dreifðari byggða búi við vegna takmarkaðra möguleika á að greiða atkvæði utan kjörfundar,“ segir í tilkynningunni.

Samþykkt sambandsins:

„Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga gerir þá kröfu til dómsmálaráðuneytisins og sýslumannsembætta að þau tryggi að skipulag utankjörfundaratkvæðagreiðslu henti íbúum í hverjum landshluta án þess að þeir þurfi að ferðast um langan veg. Jafnframt þarf að tryggja að sjómenn eigi kost á því að greiða atkvæði utan kjörfundar.  Óásættanlegt er að skortur á þjónustu af hálfu sýslumanna verði til þess að draga úr kjörsókn.   

Stjórn sambandsins telur mikilvægt að hafnar verði sem fyrst viðræður á milli sambandsins, dómsmálaráðuneytisins, forsætisráðuneytisins, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Þjóðskrár Íslands um nauðsynlegar úrbætur á kosningalöggjöf og framkvæmd kosninga. Í þeim viðræðum verði sérstaklega horft til þess á hvern hátt sé hægt að auka kosningaþátttöku.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert