Samkomulagi um þinglok náð

Samkomulag náðist um þinglok á Alþingi í kvöld. Þingfundur stendur …
Samkomulag náðist um þinglok á Alþingi í kvöld. Þingfundur stendur hins vegar enn yfir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Formenn stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi náðu samkomulagi rétt fyrir miðnætti um þinglok. Frá þessu er greint í miðnæturfréttum RÚV. Ekki er ljóst hvenær þingstörfum lýkur nákvæmlega. Formenn flokkanna komu saman klukkan tíu í kvöld til að ræða þinglok.

Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra staðfesti við fjöl­miðla í gær að hún teldi rétt að leggja til óbreytt veiðigjöld, en jafn­framt að það væri gegn því að sátt næðist í öðrum atriðum er varða þing­hald. Svo virðist sem tekist hafi að semja um þau atriði í kvöld. 

Þingfundur hefur staðið yfir á Alþingi frá því klukkan hálfellefu í morgun og stendur enn yfir þar sem umræða um fjármálaáætlun 2019-2023 fer fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert