Mála gleðirendur á Skólavörðustíg

Í dag verður Skólavörðustígurinn enn á ný málaður í regnbogans …
Í dag verður Skólavörðustígurinn enn á ný málaður í regnbogans litum.

Hinsegin dagar í Reykjavík hefjast í dag klukkan 12 á hádegi þegar stjórn Hinsegin daga ásamt Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra Reykjavíkur, mála fyrstu gleðirendurnar á Skólavörðustíg í miðborg Reykjavíkur. 

Í framhaldinu verður Skólavörðustígur, frá Bergstaðastræti að Laugavegi/Bankastræti, málaður í öllum litum regnbogans af gestum og gangandi undir leiðsögn starfsfólks Reykjavíkurborgar. 

Þetta er í annað sinn sem Skólavörðustígurinn er málaður en það er ekki að ástæðulausu að regnboginn fær þar aftur heimili á 40 ára afmælisári Samtakanna ’78, félags hinsegin fólks, segir í fréttatilkynningu. „Gatnamót Skólavörðustígs og Bergstaðastrætis eru tengdari baráttu hinsegin fólks en marga grunar en nánar verður fjallað um það í setningarræðu formanns Hinsegin daga á morgun. Áður hafa tröppur Menntaskólans í Reykjavík og heimreið Ráðhúss Reykjavíkur verið klædd regnboga í tilefni Hinsegin daga,“ segir í tilkynningunni.

Hinsegin dagar hafa verið haldnir árlega í Reykjavík frá árinu 1999 og hefur hátíðin vaxið og dafnað með hverju ári. Í ár standa Hinsegin dagar frá 7. til 12. ágúst og á dagskránni eru ríflega 30 viðburðir af ýmsum toga, þar má nefna sögusýningu, tónleika, dansleiki, leiksýningu, dragsýningu, uppistand og margt fleira auk afar fjölbreyttra fræðsluviðburða.

Hinsegin dagar ná hápunkti sínum laugardaginn 11. ágúst með gleðigöngu og útihátíð. Að þessu sinni fer gleðigangan frá Sæbraut við tónlistarhúsið Hörpu að Hljómskálagarðinum þar sem útihátíð ársins fer fram. Undanfarin ár hafa um 70.000-100.000 gestir tekið þátt í dagskrá Hinsegin daga í tengslum við gleðigönguna og búast skipuleggjendur við miklum mannfjölda í ár enda veðurspáin góð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert