„Ys og þys út af litlu sem engu“

Listamaður­inn Kevin Su­deith skar listi­lega út lág­mynd­ir, fugl og reiðmann.
Listamaður­inn Kevin Su­deith skar listi­lega út lág­mynd­ir, fugl og reiðmann. Ljós­mynd/​Kevin Su­deith

„Mér finnst þetta mikill ys og þys út af litlu sem engu,“ segir Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, spurður um fyrirspurn frá Umhverfisstofnun sem bæjarstjórninni var send í kjölfar áletrana á kletta og náttúrumyndanir í Stöðvarfirði og fjallað var um í Morgunblaðinu í gær.

„Umhverfisstjóri hefur svarað þeim,“ segir Jón og bætir við: „Þegar við tókum málið fyrir á vettvangi [umhverfis- og skipulagsnefndar] í vetur þá var það mat okkar og skipulagsfulltrúa að þetta væri ekki leyfisskyldur gjörningur af okkar hálfu, þ.e. við yrðum ekki að veita framkvæmdaleyfi. Málið var kynnt á grundvelli náttúruverndarlaganna. Þarna lá fyrir leyfi landeiganda.“

Jón bendir á að berggangar sem þessir séu nokkuð algengir á svæðinu og í umfjöllun um málið í vetur hafi náttúru- og skipulagsnefnd ekki talið að þarna væri um að ræða náttúruvætti sem um gilda sérstök lög.

Umhverfisstofnun telur áletr­an­irnar brjóta í bága við nátt­úru­vernd­ar­lög. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert