Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur tvítugum karlmanni fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem átti sér stað í Kjarnaskógi árið 2016. Manninum er gert að hafa stungið annan mann tvisvar með þeim afleiðingum að slagæð og bláæð í læri fórnarlambsins fóru í sundur. Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur gefið út tvær ákærur á hendur sama manni fyrir brot á vopnalögum og fíkniefnalögum.
Brotaþoli missti mikið blóð og var í lífshættu. Unnusta hans bjó strax um sárið og er það talið hafa orðið honum til bjargar. Hann var fluttur með sjúkrabíl á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann fór í tveggja tíma aðgerð. Brotaþoli krefst þess að ákærði greiði sér skaða- og miskabætur að fjárhæð kr. 3.925.200.
Saksóknari fer fram á að ákærði verður dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur gefið út tvær ákærur á hendur sama manni fyrir vopnalagabrot og fíkniefnalagabrot.
Maðurinn er ákærður fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa verið með um hálft gramm af amfetamíni í vörslum sínum í október á síðasta ári. Þá er hann ákærður fyrir vopnalagabrot með því að hafa verið með hníf af gerðinni Karambit Tactical á sér á almannafæri í febrúar á þessu ári.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra gerir þær kröfur að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er gerð krafa að um að fíkniefnin og hnífurinn verði gerð upptæk.