Grunaðir um grófa líkamsárás á dyravörð

Fjórir eru í haldi lögreglu.
Fjórir eru í haldi lögreglu. mbl.is/Eggert

Fjórir menn eru í haldi grunaðir um grófa líkamsárás fyrir utan skemmtistaðinn Shooters í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags.

Samkvæmt heimildum mbl.is er dyravörðurinn alvarlega slasaður eftir árásina.

Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að fjórir menn séu í haldi og að málið sé til rannsóknar. Hann segir að um sé að ræða grófa árás.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert