Hundrað myndir safnast í #betra loftslag

Ein af þeim myndum sem hafa verið sendar í keppnina.
Ein af þeim myndum sem hafa verið sendar í keppnina. Ljósmynd/Hrafnhildur Árnadóttir

Nú stendur yfir ljósmyndasamkeppnin #betraloftslag en henni lýkur 8. september, á degi Loftslagsgöngunnar.

Til að taka þátt þarf að taka myndir af einhverju sem tengist lífsstíl að betra loftslagi eða hefur hvetjandi áhrif í baráttunni við loftslagsbreytingar og merkja þær með myllumerkinu #betraloftslag á Instagram eða Facebook.

Nú þegar hafa safnast rúmlega hundrað skemmtilegar myndir sem við hvetjum alla til að skoða, að því er segir í tilkynningu.

Margir veglegir vinningar eru í boði en dómarar keppninnar verða Spessi Hallbjörnsson ljósmyndari, Ísold Uggadóttir kvikmyndagerðarkona og Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar.

Ein af myndunum úr keppninni.
Ein af myndunum úr keppninni. Ljósmynd/Sveinlaug Sigurðardóttir

Ýmsir möguleikar eru að lífsstíl að betra loftslagi. Í tilkynningunni er mælt með:

- Samgöngumátum sem krefjast lítils útblásturs.

- Einföldum lífsstíl án óþarfa neyslu.

- Endurnýtingu og endurvinnslu.

- Plastlausum lífsstíl.

- Grænkeralífsstíl.

- Innlendri framleiðslu.

- Styrkja samtök sem auka skóga.

- Styrkja samtök sem endurheimta votlendi.

- Ræða um lífsstíl að betra loftslagi og loftslagsbreytingar.

- Krefja yfirvöld og fyrirtæki um aðgerðir sem sporna við loftslagsbreytingum.

Mælt er með eftirfarandi umræðuhópum á Facebook:

Loftslagsbreytingar - umræða og fréttir,

Lífsstíll að betra loftslagi,

Plastlaus september,

Samtök um bíllausan lífsstíl

Vegan Ísland

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert