Hæstiréttur ætlar að leyfa upptökur í hljóði og mynd þegar dómur verður kveðinn upp í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, en almennt eru slíkar upptökur ekki leyfðar þegar þinghald fer fram.
Í tilkynningu frá Hæstarétti í dag kemur fram að þegar dómur verði kveðinn upp í þessu máli verði hann fyrstur í röðinni og svo verði gert 5 mínútna hlé þar til aðrir dómar verða kveðnir upp.
Almennt eru dómsuppkvaðningar á fimmtudögum klukkan 14:00 og birtist málalisti yfir þau mál sem dómur er kveðinn upp í fyrr um morguninn. Ekki er tiltekið í tilkynningu réttarins hvort dómur verði kveðinn upp í þessu tiltekna máli nú á fimmtudaginn eða hvort það verði á næstu vikum. Málflutningur fór fram dagana 13. og 14. september og verða því nú á fimmtudaginn tvær vikur frá því að málið var tekið fyrir. Hæstiréttur hefur fjórar vikur til að úrskurða í málum.
Í þessu máli er sú sérstaka staða uppi að bæði ákæruvald og verjendur fara fram á sýknu. Þó er deilt um hvort Hæstiréttur geti komist að annarri niðurstöðu en sýknu. Jón Steinar Gunnlaugsson, einn verjenda í málinu, sagði í málflutningi sínum að Hæstiréttur ætti ekki annan kost en að fallast á sýknukröfu enda væri dómstólnum óheimilt að fara út fyrir kröfur málsaðila. Davíð Þór Björgvinsson, settur saksóknari í málinu, sagði engu að síður í samtali við mbl.is áður en málflutningur hófst að það væri á valdi Hæstaréttar hvort sýknukrafan yrði tekin til greina.