Auknar eftirlitsheimildir vegna brota á vinnumarkaði

Byggingaverkamenn að störfum. Mynd úr safni.
Byggingaverkamenn að störfum. Mynd úr safni. mbl.is/​Hari

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, segist binda vonir við ný lög sem auka heimildir Vinnueftirlitsins og Vinnumálastofnunar við eftirlit á vinnustöðum og sem veita stofnununum víðtækari heimildir til að miðla upplýsingum sín á milli og til ríkisskattstjóra og lögreglu. Þetta er haft eftir ráðherra í frétt á vef Stjórnarráðsins og sagt að aðgerðirnar „muni torvelda markvissa brotastarfsemi á vinnumarkaði“.

Stöðva verði háttsemi af því tagi sem lýst var í fréttaskýringaþættinum Kveiki í gær og draga þá sem slík brot fremja til ábyrgðar. 

Vísar Ásmundur Einar með orðum sínum í breytingu á lögum um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands. Er markmið laganna að tryggja að laun og önnur starfskjör starfsmanna séu í samræmi við íslensk lög og kjarasamninga, sem og „að bæta yfirsýn stjórnvalda yfir eðli og umfang þessara mála“. 

Bendir ráðherra á að stutt sé liðið frá gildistöku laganna og virkni þeirra því ekki að fullu komin í ljós. „Reynslan sýni að brot á vinnumarkaði snúist oft um mun fleiri þætti en kjarasamninga eina og sér og varði gjarna löggjöf á ýmsum sviðum. Því skipti miklu máli að eftirlitsaðilar geti miðlað upplýsingum sín á milli til að eftirlitið skili fullnægjandi árangri,“ segir í fréttinni.

Glöggt hafi komið fram í Kveik að þeir aðilar sem hafi „skýran ásetning um að brjóta á vinnandi fólki beiti til þess margvíslegum aðferðum. Brotin séu margvísleg og sönnunarfærslan geti verið flókin. Til að eftirlitið sé árangursríkt þurfi virkt samstarf á mörgum sviðum, þvert á stofnanir og milli margra ólíkra aðila.“

Brot sem þessi verði ekki liðin og kveðst Ásmundur Einar hafa vakið athygli á  stöðu þessara mála um miðjan september. Þá hafi hann lagt fram tillögu um aukna samvinnu eftirlitsaðila til að sporna gegn félagslegum undirboðum á íslenskum vinnumarkaði.

„Til samstarfs í þessu skyni hefur ráðherra kallað til Alþýðusamband Ísland, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Bandalag háskólamanna, BSRB, dómsmálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Embætti ríkislögreglustjóra, Embætti ríkisskattstjóra, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins, Vinnueftirlitið og Vinnumálastofnun,“ segir í fréttinni.

Hlutverk hópsins verði m.a. að leggja til leiðir sem vænlegar eru til árangursríkara eftirlits, leggja til sameiginleg markmið eftirlitsaðila á vinnumarkaði, sem og að skilgreina mælikvarða til að meta árangurinn af þeim aðgerðum sem lagðar verða til.

Gert er ráð fyrir að samstarfshópurinn skili ráðherra skýrslu fyrir 1. febrúar 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert