„Ekki ætlun okkar að meiða neinn“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Anna Kolbrún Árnadóttir og …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Anna Kolbrún Árnadóttir og Bergþór Ólason, þingmenn Miðflokksins. Samsett mynd

Fjórir þingmenn Miðflokksins vilja biðja þá afsökunar sem farið var ónærgætnum orðum um í samtölum sem fóru fram á hótelber í síðustu viku. „Það var ekki ætlun okkar að meiða neinn og ljóst má vera að sá talsmáti sem þarna var á köflum viðhafður er óafsakanlegur.“

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem flokkurinn hefur sent til fjölmiðla. 

Hún er svohljóðandi:

„Við fjórir þingmenn Miðflokksins sem sátum á hótelbarnum Klaustri í liðinni viku viljum biðja þá sem farið var ónærgætnum orðum um í þeim einkasamtölum sem þar fóru fram einlæglegrar afsökunar.  Það var ekki ætlun okkar að meiða neinn og ljóst má vera að sá talsmáti sem þarna var á köflum viðhafður er óafsakanlegur. Við einsetjum okkur að læra af þessu og munum leitast við að sýna kurteisi og virðingu fyrir samferðarfólki okkar. Jafnframt biðjum við flokksmenn Miðflokksins og fjölskyldur okkar afsökunar á að hafa gengið fram með þessum hætti.“

Undir yfirlýsinguna skrifa:

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Gunnar Bragi Sveinsson
Bergþór Ólason
Anna Kolbrún Árnadóttir

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert