Segir af sér sem formaður

Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja og Landsambands verslunarmanna (LÍV).
Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja og Landsambands verslunarmanna (LÍV).

Guðbrandur Einarsson, formaður Landssambands íslenskra verzlunarmanna (LÍV), hefur sagt af sér sem formaður en hann segir verulegan meiningarmun vera á milli hans og forsvarsmanna VR.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér en Guðbrandur hefur verið formaður LÍV í hartnær 6 ár. 

„Þessi staða hefur gefið mér margt og veitt mér tækifæri til að takast á við ný verkefni s.s. að eiga mikil og náin samskipti við systursamtök á Norðurlöndum og kynnast fólki sem þar er í forsvari. Sú reynsla hefur kennt mér margt sem ég mun búa að.

Þær breytingar hafa hins vegar orðið að það stéttarfélag sem ég hef verið í forsvari fyrir undanfarin 21 ár, sameinast VR þann 1. apríl og við það færist samningsumboð þess félags yfir til VR í kjölfarið. Þá er sú staða uppi að LÍV og VR hafa ekki átt samleið við gerð kjarasamnings, þrátt fyrir að hafa lagt fram sameiginlega kröfugerð.

Verulegur meiningarmunur er á milli mín og forsvarsmanna VR með hvaða hætti skuli nálgast kjarasamningsgerð og þar sem ég hef ákveðið að þiggja ekki starf hjá VR, þrátt fyrir boð þar um, tel ég eðlilegt að ég stígi úr stóli formanns Landssambands íslenskra verslunarmanna á þessum tímapunkti.

Ég er fullur þakklætis fyrir þann tíma sem ég hef setið í stjórn LÍV sem nú telur tvo áratugi og kveð þennan vettvang fullur auðmýktar. Ég vil óska stjórn LÍV velfarnaðar í störfum sínum fyrir íslenskt launafólk og þakka þeim einstaklingum sem ég hef fengið að vinna með á þessum vettvangi fyrir einstök og góð kynni,“ segir í yfirlýsingunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert