Boðvald stéttarfélaga nær til félagsmanna

Rútur á Hakinu.
Rútur á Hakinu. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Stjórnarskrá lýðveldisins hefur að geyma ákvæði um félagafrelsi. Í því felst að þú getur verið í því félagi sem þú vilt og staðið utan þess félags sem þú vilt,“ segir Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður. Hann sagði að hluti rútubílstjóra á höfuðborgarsvæðinu væri hvorki félagar í Eflingu né VR.

„Það að þeir séu bundnir við verkfallsboðun þessara félaga er algjörlega útilokað. Þeir eru ekki í félögunum og þurfa ekki að vera í þeim. Auk þess hafa þeir ekki réttindi í félögunum t.d. til að fá úr verkfallssjóðum. Sú túlkun Eflingar að allir sem aka stórum bílum á þessu svæði eigi að vera í verkfalli stenst ekki skoðun.“

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Helgi að í 3. grein laga um stéttarfélög og vinnudeilur segði að boðvald stéttarfélaganna væri bara yfir félagsmönnum en ekki öðrum. „Ég skil ekki hvernig fólki getur dottið í hug að það geti ráðskast með allt og alla svona,“ sagði Helgi.

Hann kvaðst vita að hópbifreiðafyrirtæki ætluðu að láta reyna á skaðabótakröfur gegn verkalýðsfélaginu ef verkfallsverðir þess meinuðu bílstjórum, sem þurfa ekki að vera í verkfalli, að gegna störfum. „Fólk getur misst af flugferðum eða orðið af dýrum ferðum vegna svona aðgerða svo það geta myndast háar skaðabótakröfur,“ sagði Helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert