Hóta Icelandair hótel lögsókn

Kröfuganga hótelstarfsmanna Eflingar.
Kröfuganga hótelstarfsmanna Eflingar. mbl.is/Hari

Efling stéttarfélag fordæmir harðlega þá ákvörðun Icelandair hótel að draga laun af starfsmönnum vegna verkfalla sem þeir tóku ekki þátt í. Efling skorar jafnframt á hótelkeðjuna að leiðrétta mistökin tafarlaust. Hótelkeðjunni ber að bæta starfsmönnum upp launamissi ásamt dráttarvöxtum og veita þeim jafnframt afsökunarbeiðni.

Icelanda­ir hót­el tóku ákvörðun um að draga laun af öll­um þeim starfs­mönn­um sem vinna störf sem féllu und­ir verk­fallsaðgerðir stétt­ar­fé­laga í síðasta mánuði, óháð því hvort viðkom­andi starfs­menn hefðu verið á vakt þá daga sem verk­fallsaðgerðirn­ar stóðu yfir.

„Efling hafnar alfarið tilraunum hótelkeðjunnar til að skjóta sér undan ábyrgð á málinu. Fulltrúi keðjunnar hefur hermt upp á starfsmenn að þeir hafi sagst eiga rétt á greiðslum úr vinnudeilusjóði þótt þeir hafi ekki verið við störf. Slíkt á sér enga stoð í veruleikanum. Efling gaf út ítarlegar skriflegar leiðbeiningar um rétt á greiðslum úr vinnudeilusjóðum og þar kemur slíkt hvergi fram. Skýringar hótelsins standast því enga skoðun og eru yfirklór,“ segir í tilkynningu frá Eflingu.

Icelandair Reykjavik Consulate hótel í Hafnarstræti.
Icelandair Reykjavik Consulate hótel í Hafnarstræti. mbl.is/Kristinn Magnússon

Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, segir þetta svívirðilega framkomu. „Það er verið að hafa laun upp á 12-25 þúsund krónur af fólki sem er á lægstu laununum. Það er hreint með ólíkindum að hótelkeðjan skuli grípa til þessara ráðstafana og við munum bregðast við af fullri hörku.“

Efling mun gera kröfu á Icelandair hótel að greiða starfsmönnunum sem ekki voru á vakt laun, ef ekki verður orðið við henni verður farið með málið fyrir dóm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert