Ekki búið að uppræta E.coli bakteríuna

Annar þeirra sem smitaðist kom í Efstadal eftir að gripið …
Annar þeirra sem smitaðist kom í Efstadal eftir að gripið var til aðgerða til að hindra mögulegt smit. mbl.is/Hari

Gerðar hafa verið auknar kröfur um úrbætur vegna E.coli í Efstadal II. Þetta kemur fram í frétt á vef embættisins. 21 hefur nú greinst með E.coli bakteríuna og var einn þeirra á ferð í Efstadal eftir að gripið var til aðgerða til að uppræta smit og smitleiðir.

Niðurstaða rannsókna hefur sýnt að þeir tveir fullorðnu einstaklingar sem greindust með bakteríuna þann 17. júní sl. sýna að sýkingin var sömu tegundar og greindist í börnunum og kálfunum. 

„Annar einstaklinganna starfar í Efstadal og hefur verið einkennalaus. Viðkomandi hefur ekki starfað við matvælaframleiðslu eða afgreiðslu matvæla og hefur því ekki sérstaka tengingu við hina sýktu. Niðurstaðan sýnir hins vegar að E.coli bakterían er útbreiddari á staðnum en áður hefur verið sýnt fram á og ekki eingöngu bundin við kálfana," segir í fréttinni.

Hinn einstaklingurinn sem sýktist er erlendur ferðamaður sem kom ekki til landsins fyrr en  5. júlí, en gripið hafði verið til aðgerða í Efstadal 4. júlí sem áttu að uppræta mögulegt smit. Ferðamaðurinn heimsótti Efstadal 8. júlí og neytti þar matvæla, þar á meðal íss, en var ekki í samneyti við dýrin á staðnum. Hann veiktist síðan 11. júlí. 

„Það er því ljóst að ekki hefur tekist að uppræta smit og smitleiðir í Efstadal með þeim aðgerðum sem gripið var til um og eftir 4. júlí sl.“ Í ljósi þessara upplýsinga hefur Heilbrigðiseftirlit Suðurlands í samráði við Matvælastofnun gert kröfur um úrbætur á starfseminni.

Meðal þess sem heilbrigðiseftirlitið fer fram á er að 

  • Sala íss verði stöðvuð þar til alþrif og sótthreinsun hefur verið gerð. Framleiðsla íss á staðnum var stöðvuð þ. 5. júlí sl. og verður ekki hafin fyrr en að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
  • Alþrif og sótthreinsun fari fram á veitingastað og aðlægum rýmum (var lokið 19.7).
  • Aðgengi að dýrum verði áfram lokað þar til viðunandi hreinlætisaðstaða/handþvottaraðstaða hefur verið sett upp.
  • Aðskilnaður milli veitingasvæða og dýra verði efldur. 
  • Starfsmenn sem vinna við matvæli verður gert að sýna fram á þeir séu ekki með bakteríuna STEC E.coli.

Rannsökuð voru sýni frá 6 einstaklingum í gær og greindist enginn með E.coli sýkingu. E.coli sýking því verið staðfest hjá 21 einstaklingi, 19 börnum og tveimur fullorðnum einstaklingum. Ekkert barn er nú inniliggjandi á Barnaspítala Hringsins af völdum STEC E.coli, enn er hins vegar beðið eftir staðfestingu á greiningu hjá barninu í Bandaríkjunum sem grunað er um alvarlega E. coli sýkingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert