Ekkert komið fram sem bendir til íkveikju

Frá aðgerðum slökkviliðsins á vettvangi í gær.
Frá aðgerðum slökkviliðsins á vettvangi í gær. mbl.is/​Hari

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á brunanum í húsnæðinu í Fornubúðum í Hafnarfirði í fyrrinótt er skammt á veg komin, en ekkert hefur þó komið fram sem bendir til íkveikju.

Fram undan er frekari vinna á vettvangi, en þegar hefur verið rætt við nokkur vitni. Þá er enn fremur unnið að því að afla myndefnis sem gæti nýst í þágu rannsóknarinnar, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu.

Þá segir hún, að ekki sé að vænta frekari frétta af málinu að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert