Einn vann 1,5 milljón

mbl.is

Hvorki fyrsti né annar vinningur í Víkingalottóinu gengu út í kvöld en þeir hljóðuðu annars vegar upp á rúmar 597 milljónir króna og hins vegar rúmar 30 milljónir.

Hins vegar hlaut einn heppinn vinningshafi rúma 1,5 milljónir króna í þriðja vinning en hann var með fimm af sex tölum réttar. Miðinn var keyptur í áskrift.

Tölur kvöldsins voru: 2, 7, 12, 30, 35 og 43. Víkingatalan var 2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert