Hvetur Play til að leggja allt á borðið

Drífa Snædal, forseti ASÍ, hvetur forsvarsmenn flugfélagsins Play til að …
Drífa Snædal, forseti ASÍ, hvetur forsvarsmenn flugfélagsins Play til að birta kjarasamning við flugliða. Ljósmynd/ASÍ

Drífa Snædal, forseti ASÍ, gerir flugfélagið Play nú aftur að umtalsefni í föstudagspistli sínum.

„Það þótti tíðindum sæta að nýtt flugfélag var stofnað hér á landi og fréttir berast af því að kostnaði verði haldið í lágmarki með öllum ráðum, m.a. með því að halda launum niðri,“ segir Drífa.

Fyrirtækið hafi ekki birt kjarasamning sem það þykist hafa gert um störf flugliða og því fái fólkið sem um störfin sækir varla að vita kaup og kjör.

„Þær vísbendingar sem okkur hafa borist hníga í þá átt að greiða á grunnlaun langt undir því sem almennir kjarasamningar segja til um. Ég hvet fyrirtækið til að birta kjarasamninginn og leggja allt á borðið, ekki aðeins á fólk sem hyggst sækja um störf hjá Play rétt á þessari vitneskju heldur skiptir það okkur öll máli ef verið er að stunda undirboð á vinnumarkaði.“

Kveðst Drífa líka ætlast til þess að að fjárfestar og þeir sem eiga í viðskiptum við fyrirtækið krefji það um upplýsingarnar. „Það verður ekki liðið að fyrirtæki starfi á íslenskum vinnumarkaði með undirboðum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert