Alcoa Fjarðarál hrósar starfsmönnum Landsnets

Verksmiða Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði.
Verksmiða Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði. mbl.is/Sigurður Bogi

Stjórnendur Alcoa Fjarðaráls vilja koma á framfæri þökkum til starfsmanna Landsnets fyrir „fumlaus vinnubrögð við að koma Fljótsdalslínu 4 með öruggum og skjótum hætti í gagnið“ eftir óveðrið sem gekk yfir landið.

Þannig hafi þeir tryggt afhendingaröryggi á raforku til álversins við Reyðarfjörð.

Starfsmenn Landsnets við viðgerð á Dalvíkurlínu.
Starfsmenn Landsnets við viðgerð á Dalvíkurlínu. Ljósmynd/Frans Friðriksson

„Landsnet einhenti sér í verkefnið við erfiðar aðstæður og tryggði mannskap, tæki og verktaka til að koma línunni aftur í rekstur á eins stuttum tíma og mögulegt var án þess þó að slá af kröfum um öryggi við krefjandi veðuraðstæður. Á sama tíma var mikið eftirlit með Fljótsdalslínu 3 til að tryggja að ísing myndi ekki trufla rekstur hennar á meðan lína 4 var úti,“ segir í tilkynningu frá Alcoa Fjarðaráli.

Þar kemur fram að afhendingaröryggi raforku sé afar mikilvægt álverinu og að truflun á straumi hafi áhrif á stöðugleika og framleiðslu.

Fljótsdalslína.
Fljótsdalslína. Ljósmynd/Landsnet
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert