Þrefalt minna svifryk en í fyrra

Líkt og Íslendingar þekkja eykst svifryk umtalsvert á gamlárskvöld.
Líkt og Íslendingar þekkja eykst svifryk umtalsvert á gamlárskvöld. AFP

Magn svifryks í andrúmslofti á mælistöð við Grensásveg í Reykjavík fyrstu klukkustund nýársdags í ár var um þrefalt minna í ár en í fyrra.

Elfa Björk Ellertsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Reykjavíkurborg, segir að ástæðan fyrir þessu sé að öllum líkindum veðrið sem var á höfuðborgarsvæðinu á gamlárskvöld og nýársdag. Úrkoma var til staðar en líklegt er að mengunin hafi blandast henni og því farið niður í jarðveginn í stað þess að halda sig í andrúmsloftinu. Ómögulegt er að segja hvort minni mengun megi rekja til þess að færri hafi skotið upp flugeldum, að sögn Elfu. 

„Styrkur svifryks fyrstu klukkustundina árið 2020 var 317 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöðinni við Grensásveg í Reykjavík. Til samanburðar var fyrsta klukkustundin árið 2019 985 míkrógrömm á rúmmetra og 2018 var hann 1.457 míkrógrömm á rúmmetra. Á síðasta áratug var hann hæstur árið 2010 eða 1.575 míkrógrömm,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

Magn svifryks í andrúmslofti fór vel yfir heilsuverndarmörk á flestum mælistöðvum fyrstu klukkustund nýársdags en minnkaði svo hratt og var einungis yfir heilsuverndarmörkum aðra klukkustund nýársdags í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. 

Heilsuverndarmörk svifryks eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Við Grensásveg fór styrkur svifryks 14 sinnum yfir sólarhringheilsuverndarmörk árið 2019 miðað við gögn en styrkur má fara 35 sinnum yfir mörk samkvæmt reglugerð þar um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert