Fundur í kjaradeilu Eflingar og Reykjavíkurborgar hófst hjá ríkissáttasemjara klukkan 14. Verkfallsaðgerðir starfsfólks Eflingar í borginni hefjast 4. febrúar nái samningsaðilar ekki saman fyrir þann tíma.
Verkfallið nær til starfsfólks á leikskólum borgarinnar, fyrir utan menntaða leikskólakennara, starfsfólk hjúkrunarheimila, í heimahjúkrun og við sorp- og gatnaumhirðu.
Félagsmenn samþykktu verkfallsaðgerðir um helgina með 95,5 prósentum greiddra atkvæða.