Eldingaveður tefur fyrir rafmagnsviðgerðum

Ljósmynd frá skemmdum á rafmagnslínum í ofsaveðrinu í desember.
Ljósmynd frá skemmdum á rafmagnslínum í ofsaveðrinu í desember. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aðstæður á Suðurlandi eru að skána og eru vinnuflokkar frá Rarik farnir af stað í bilanaleit í Árnessýslu, en enn er erfitt að komast til vinnu í Rangárvallasýslu og Skaftafellssýslu.

„Þessu til viðbótar er eldingaveður að koma yfir landið og það getur bæði valdið truflunum, en einnig getur þetta tafið fyrir truflanaleit og viðgerðum,“ segir í tilkynningu frá Rarik.

Á Suðurlandi er vitað um truflanir á tólf stöðum, sem sjá má í yfirliti Rarik. Enn er rafmagnslaust í Mýrdal og rafmagn skammtað á Vík.

Þá er enn rafmagnslaust í Hornafirði vegna bilunar í flutnings- og dreifikerfi. „Í ljós hefur komið að krapi og selta í einöngrurum við múffuvirki norðan við Höfn. Verið er að undirbúa að skolun,“ segir í tilkynningu Landsnets.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert