Gjaldfærni Sorpu alltaf tryggð

Í yfirlýsingu Sorpu kemur jafnframt fram að miðað sé við …
Í yfirlýsingu Sorpu kemur jafnframt fram að miðað sé við að endurskoðun á rekstri og fjármögnun Sorpu sem nú standi yfir ljúki á næstu mánuðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sorpa bs. er byggðarsamlag sem felur í sér að sveitarfélögin sex sem að henni standa bera ábyrgð á rekstrinum, og er gjaldfærni fyrirtækisins því alltaf tryggð þó að til þess geti komið að sveitarfélögin þurfi að leggja fram frekari fjármuni til rekstursins.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sorpu, en Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, sagði á opnum bæjarstjórnarfundi í gær að ef ekkert yrði að gert færi Sorpa í greiðsluþrot upp úr miðjum mars. Fjallað var um ummæli Haralds á RÚV í dag.

Þá sagði Haraldur að farið yrði fram á 600 milljóna króna lán frá eigendum Sorpu á fundi á mánudag. Í yfirlýsingu Sorpu segir að það liggi fyrir að ganga þurfi frá heildarfjármögnun fyrirtækisins til að standa undir þeim miklu fjárfestingum sem félagið hafi verið í.

Þá er áréttað að beiðni um lánveitingu sé liður í að skapa nauðsynlegt ráðrúm til að fara yfir heildarfjármögnun framkvæmda og rekstur Sorpu til lengri tíma. Um væri að ræða eðlilega fjármögnunaraðgerð á byggingartíma mannvirkja.

Í yfirlýsingu Sorpu kemur jafnframt fram að miðað sé við að endurskoðun á rekstri og fjármögnun Sorpu sem nú standi yfir ljúki á næstu mánuðum. 

„Mikilvægi starfsemi SORPU bs. hefur aukist í takti við vaxandi kröfur um úrbætur í umhverfismálum á undanförnum árum. Á sama tíma hefur sorpmóttaka dregist saman á samlagssvæðinu, sem er vissulega jákvætt en kemur þó niður á tekjustraumum til SORPU bs.  Lögum samkvæmt ber að hætta urðun lífræns úrgangs eigi síðar en 2025 en það hefur m.a. leitt til þess að ráðast hefur þurft í kostnaðarsamar framkvæmdir á vegum SORPU bs. þ.m.t. byggingu svokallaðrar gas- og moltuverksmiðju. Fjármögnun þessara verkefna er nú í heildarskoðun og er miðað við að tillögur þar að lútandi liggi fyrir á næstu mánuðum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert