SÍS hafi tafið viðræður fram úr hófi

Samninganefnd Eflingar.
Samninganefnd Eflingar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Enginn skortur hefur verið á vilja Eflingar til að eiga viðræður við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) og enginn skortur hefur verið á tækifærum fyrir SÍS að koma á framfæri viðbrögðum og hugmyndum um lausn deilunnar.

„Að mati Eflingar hefur samninganefnd SÍS tafið málið fram úr hófi. Efling telur þau vinnubrögð samninganefndar SÍS ekki hafa breyst á síðustu dögum eða vikum,“ segir í yfirlýsingu frá Eflingu, sem er svar við yfirlýsingu formanns SÍS frá í morgun. 

Efling vill koma því á framfæri að stéttarfélagið hafi átt tugi viðræðufunda í kjaradeilu við SÍS síðan í mars 2019, þar af sjö undir forræði ríkissáttasemjara eftir að deilu var vísað þangað.

„Yfirlýsing samninganefndar Eflingar frá því í gær um árangurslausar viðræður og tilkynning um verkfallsatkvæðagreiðslur útilokar ekki að SÍS geti kynnt samninganefnd Eflingar ný viðbrögð og tillögur, sé þeim til að dreifa, og fengið fram sátt um nýjan kjarasamning áður en til verkfalls kemur.“

Boðað hefur verið til fundar í deilunni næstkomandi fimmtudag hjá ríkissáttasemjara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert