Annað tilvik af kórónuveiru greinist á Íslandi

Sýni sem tekið var af karlmanni á sextugsaldri sem kom til landsins í gær með flugvél Icelandair frá Veróna á Ítalíu reyndist jákvætt af smiti kórónuveiru. Þar með hafa tvö tilfelli veirunnar verið staðfest á Íslandi. Maðurinn sem um ræðir var með lítil einkenni í gær og enn minni í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum.

Allir farþegar sem komu frá Veróna fari í 14 daga sóttkví

Áhættumat vegna ferðalaga til Ítalíu er nú breytt og er landið allt nú flokkað sem áhættusvæði. Þess vegna beinir sóttvarnalæknir því til allra þeirra farþega sem voru um borð í flugvélinni að fara í 14 daga sóttkví sem og allra þeirra sem koma frá Ítalíu á næstunni. Allir þeir sem eru í sóttkví skulu hafa samband í síma 1700 ef þeir finna fyrir fyrrgreindum einkennum, jafnvel þótt væg séu.

Samtals komu 180 farþegar með vélinni frá Veróna í gær og höfðu þeir dvalið í norðurhluta landsins. Var sérstakur viðbúnaður viðhafður vegna þessa, þar á meðal var heilbrigðisstarfsfólk á staðnum til að koma upplýsingum til farþega. Þrír farþegar upplýstu heilbrigðisstarfsfólk um að þau fyndu fyrir flensueinkennum og voru sýni tekin hjá þeim til greiningar, en eitt þeirra hefur nú reynst jákvætt.

Næsta laugardag er svo gert ráð fyrir öðrum hóp til landsins með flugi frá Veróna. Fyrr í dag gáfu almannavarnir út að að óbreyttu yrði sami viðbúnaður þá og á laugardaginn.

Almannavarnir og starfsfólk sóttvarnalæknis munu í kvöld hefjast handa við að rekja allar mögulegar smitleiðir í tengslum við þetta nýja staðfesta smit. Allir þessir einstaklingar munu í kvöld fá upplýsingar um stöðu mála og leiðbeiningar um sóttkví. Þessir einstaklingar eru hvattir til að hafa ekki samband í síma 1700 eða við Neyðarlínuna nema að þau finni fyrir einkennum (hósti, hiti og beinverkir). Ljóst er að einhvern tíma getur tekið að ná sambandi við alla og farþegar eru beðnir að sýna biðlund.

Á föstudaginn greindist fyrsta tilvik af smiti veirunnar hér á landi, en þá var um að ræða karlmann á fimmtugsaldri sem var nýkominn frá Norður-Ítalíu, en hann hafði verið á skíðasvæði sem var utan skilgreinds áhættusvæðis fyrir veiruna. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert