Alþjóðleg ráðstefna um kynbundið ofbeldi haldin hér 2021

#metoo-ráðstefnan sem haldin var hér í haust þótti heppnast vel.
#metoo-ráðstefnan sem haldin var hér í haust þótti heppnast vel. mbl.is

15 milljónum króna af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar verður veitt til að standa að alþjóðlegri ráðstefnu samtaka sem berjast gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni á Íslandi 2021. Ríkisstjórnin samþykkti þetta á fundi sínum á föstudag. 

Skipuleggjendum þótti Ísland kjörin staðsetning, meðal annars með vísan til lýðræðis og friðar og til vel heppnaðrar #metoo-ráðstefnu síðastliðið haust. Slíkur fundur var haldinn í Brighton á Englandi árið 1996, eða einmitt ári eftir Peking-yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. 

Borgarstjórinn í Reykjavík hefur boðað að Reykjavíkurborg muni einnig leggja til framlag þannig að hún verður haldin í samstarfi ríkis og borgar. Ráðstefnan verður haldin í Hörpu 6.–8. maí 2021.

Forsætisráðherra hugðist halda ræðu á þrjátíu ára afmæli Stígamóta í dag og greina frá þessu. Afmælishátíðinni var frestað vegna kórónuveiru.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert