Takmarkanir sem stjórnvöld hafa tilkynnt á samkomum og skólahaldi fara stærstu leyti eftir tillögum sóttvarnalæknis. Í samráði við sóttvarnalækni voru breytingar þó gerðar á tímaramma og fjöldatakmörkunum nemenda í grunnskólastofum.
Heilbrigðisráðherra barst erindi frá sóttvarnalækni um samkomubann í gær. Unnið var hratt og örugglega úr tillögum sóttvarnalæknis og voru takmarkanir á samkomum og skólahaldi kynntar á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum.
„Við vissum náttúrlega að þetta væri í pípunum eins og hefur komið fram á reglulegum upplýsingafundum Almannavarna, að þetta væri ráðstöfun sem við kynnum að þurfa að grípa til. Ég fékk tillöguna formlega til mín í gær,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í samtali við mbl.is að fundi loknum.
Svandís fundaði í kjölfarið með sínu ráðuneyti, með menntamálaráðherra og loks var tillaga að auglýsingu mótuð, sem farið var yfir á fundi ríkisstjórnar í morgun.
Aðspurð hvort takmarkanirnar færu að öllu leyti eftir tillögum sóttvarnalæknis sagði Svandís að þær hefðu algerlega verið lagðar til grundvallar. „Hins vegar lagði sóttvarnalæknir til ótímabundna aðgerð og við höfum í samræmi við hann aðlagað okkar tillögu þannig að auglýsingin gildi til fjögurra vikna, með þeim fyrirvara að við getum breytt henni í millitíðinni.“
„Varðandi fjölda barna í grunnskólum sem geta verið saman í hóp var í upphaflegri tillögu sóttvarnalæknis miðað við 15 börn. Í minni auglýsingu er rætt um 20 börn og það er að höfðu samráði við sóttvarnalækni vegna skipulags skólastarfs,“ sagði Svandís.
Þá sagði Svandís að í stöðu sem þessari væru ákvarðanir endurmetnar á hverjum einasta degi.