Aðildarfélög BSRB samþykkja kjarasamninga

Aðildarfélög BSRB hafa mörg hver samþykkt þá kjarasamninga sem náðust …
Aðildarfélög BSRB hafa mörg hver samþykkt þá kjarasamninga sem náðust nýverið. mbl.is/Golli

Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna í þeim aðildarfélögum BSRB sem lokið hafa atkvæðagreiðslu um nýja kjarasamninga samþykktu samningana. Atkvæðagreiðsla stendur enn yfir eða er að hefjast hjá öðrum félögum. Þetta kemur fram á vefsíðu BSRB.

Foss, Kjölur, Sameyki, Sambandið og Samflotið eru meðal félaga sem hafa samþykkt samningana.

Atkvæðagreiðslu um samninga aðildarfélaga BSRB sem gerðir voru við Samband íslenskra sveitarfélaga er lokið og niðurstöðurnar farnar að berast viðsemjendum og ríkissáttasemjara.

Þá er atkvæðagreiðslum nokkurra félaga um samninga við ríkið einnig lokið. Atkvæðagreiðsla annarra félaga um samninga við ríkið og Reykjavíkurborg stendur enn yfir.

BSRB hefur ekki fengið niðurstöður frá öllum aðildarfélögum en von er á þeim.

Alls samþykktu á bilinu 58 til 88 prósent félagsmanna í þeim félögum sem lokið hafa atkvæðagreiðslu kjarasamningana sem er afgerandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í kosningunni.

Þátttakan var víðast hvar góð þrátt fyrir aðstæður í samfélaginu, eða á bilinu 28 til 68 prósent. Niðurstöður úr einstaka atkvæðagreiðslum má sjá hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert