Ásmundur Helgason skipaður dómari við Landsrétt

Ásmundi Helgasyni var veitt lausn frá embætti dómara við Landsrétt …
Ásmundi Helgasyni var veitt lausn frá embætti dómara við Landsrétt og var síðan skipaður dómari við réttinn. mbl.is/Hallur Már

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að gera tillögu til forseta Íslands um skipun Ásmundar Helgasonar í embætti dómara við Landsrétt frá 17. apríl 2020. Ásmundur var skipaður dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur í maí 2010 og gegndi því starfi allt þar til hann var skipaður dómari við Landsrétt frá 1. janúar 2018.

Fyrr í þessum mánuði baðst Ásmundur lausnar frá þeirri skipun og hefur dómsmálaráðherra ákveðið að leggja til við forseta Íslands að sú beiðni verði samþykkt og honum veitt lausn frá 16. apríl næstkomandi.

Dóm­nefnd um hæfni um­sækj­enda um embætti dóm­ara við Lands­rétt skilaði umsögn í síðustu viku og var niðurstaða hennar sú að Ásmundur væri hæfastur í embætti. Auk hans sóttu eft­ir­tal­in um embættið: Ástráður Har­alds­son héraðsdóm­ari, Ragn­heiður Braga­dótt­ir lands­rétt­ar­dóm­ari og Sandra Bald­vins­dótt­ir héraðsdóm­ari.

Ástráður ritaði Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra bréf í janúar þar sem hann áskilur sér rétt til að láta reyna á lög­mæti um­sókna tveggja þeirra sem sækj­ast eft­ir embætti lands­rétt­ar­dóm­ara, á þeim grunni að lands­rétt­ar­dóm­ar­ar, sem skipaðir hafi verið ótíma­bundið í embættið, geti ekki sótt um sama embætti og þeir gegna nú þegar.

Þau Ragn­heiður og Ásmund­ur hafa verið í leyfi frá störf­um að und­an­förnu, Ásmund­ur síðan í júlí og Ragn­heiður frá því í sept­em­ber, en dóm­ar­arn­ir hafa ekki dæmt í mál­um við Lands­rétt frá því í mars, þegar Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu komst að þeirri niður­stöðu að þeir hefðu verið ólög­lega skipaðir, ásamt Arn­fríði Ein­ars­dótt­ur og Jóni Finn­björns­syni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert