200 milljónir til ferðamannastaða

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ráðstafað 200 milljónum króna viðbótarframlagi til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða á árinu 2020 með hliðsjón af vinnu stjórnar sjóðsins frá úthlutun ársins 2020 í mars sl.

Með fjárveitingunni, sem er hluti af sérstöku tímabundnu fjárfestingarátaki stjórnvalda vegna COVID-19 faraldursins, verður unnt að hraða uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum um allt land sem stuðla að öryggi ferðamanna og verndun náttúru landsins.

Alls hljóta 15 verkefni, til viðbótar við þau 33 verkefni sem tilkynnt var að fengju styrk úr sjóðnum í mars sl., brautargengi. Um er að ræða verkefni víðsvegar um landið sem sóttu um í sjóðinn við síðustu úthlutun en náðu ekki fram að ganga. Stærstur hluti úthlutunarinnar, eða 43%, rennur til verkefna á Norðurlandi eystra. Þá renna 28% til verkefna á Suðurlandi.

Ferðamálastofa mun á næstunni hafa samband við styrkþega og gera við þá samninga um framkvæmd verkefnanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert