Flugfreyjur og Icelandair funda í kvöld

Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari.
Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkissáttasemjari hefur boðað nýjan fund í kjaradeilu Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair í kvöld.

Fundurinn hefst klukkan 20 og er áætlað að honum ljúki klukkan 22, að því er kemur fram á vefsíðu ríkissáttasemjara.

Fyrr í dag óskaði FFÍ eftir því við ríkissáttasemjara að hann boðaði til fundar með samninganefnd Icelandair.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert