FFÍ: Afstaða Icelandair vonbrigði

Flugfreyjur saka Icelandair um lítinn samningsvilja.
Flugfreyjur saka Icelandair um lítinn samningsvilja. mbl.is/Árni Sæberg

Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) lýsir yfir miklum vonbrigðum með einarða og óbilgjarna afstöðu Icelandair í þeim árangurslausu samningaviðræðum sem staðið hafa yfir milli aðila síðustu vikur. Þrátt fyrir ríkan samningsvilja FFÍ og ítrekuð móttilboð hefur Icelandair haldið sig að mestu við upphaflegt tilboð sitt og sýnt lítinn vilja til samninga.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá FFÍ eftir að fundi í kjaradeilu þeirra við Icelandair var slitið fyrr í dag.

Icelandair lagði mánudaginn 18. maí enn á ný fram tilboð sem er keimlíkt því sem áður hefur verið hafnað með skýrri afstöðu félagsmanna FFÍ. Samninganefnd FFÍ lagði fram móttilboð í dag, 20. maí og gerir sér fulla grein fyrir alvarleika stöðunnar sem nú er uppi,“ segir í yfirlýsingunni.

Þar segir enn fremur að undanfarnar vikur hafi samninganefnd FFÍ ítrekað lagt fram tilboð til að koma til móts við Icelandair af fullri einlægni og með eindreginn samningsvilja. 

Tilboðið sem var lagt fram í dag fól m.a. í sér aukið vinnuframlag, eftirgjöf á flug-, vakt- og hvíldartímaákvæðum sem gefa fyrirtækinu möguleika til verulegrar hagræðingar, aukins sveigjanleika og vaxtar. Fyrirtækið hefur hins vegar á engum tímapunkti verið tilbúið til viðræðna á raunhæfum grunni,“ kemur fram í yfirlýsingunni.

Niðurstaða við samningsborð í kjaradeilu náist ekki með afarkostum frá öðrum aðilum, heldur í samtali á jafnræðisgrundvelli. FFÍ neiti að láta hræðsluáróður forsvarsmanna Icelandair beygja félagsmenn í duftið.

FFÍ ítrekar enn á ný samningsvilja sinn og óskar þess að slíkt hið sama hefði verið uppi á borðum hjá viðsemjendum, sem því miður fara fram með einhliða yfirlýsingar og minni samningsvilja en gefið er í skyn á opinberum vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert