„Ógn við skipulag vinnumarkaðarins“

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. Ljósmynd/ASÍ

Forseti ASÍ segir það mikið áhyggjuefni ef reynt verði að brjóta á bak aftur samstöðu flugfreyja, flugþjóna og stéttarfélaga, sem staðið hafa í ströngu við að reyna að ná samningum við Icelandair. 

„Það er ekki einungis ógn við þau sem stétt heldur ógn við skipulag vinnumarkaðarins og launafólk sem sækir kjör sín í samstöðu stéttarfélaga,“ segir Drífa Snædal í nýjum forsetapistli sínum. 

Fyrr í dag sendi ASÍ frá sér tilkynningu þar sem segir að Icelandair hafi ekki staðfest svo óyggjandi sé að fyrirtækið hyggist ekki ganga fram hjá Flugfreyjufélagi Íslands. 

„Enn og aftur sýnir sig mikilvægi stéttarfélaga fyrir einstaklinga ekki síður en heilu starfsstéttirnar,“ segir Drífa í pistli sínum og tengir við áhyggjur af atvinnuástandi og ekki síst sálarástandi fólks sem er mikið til umræðu þessa stundina. 

Þá þakkar hún fyrir þær viðtökur sem framtíðarsýn ASÍ „Rétta leiðin – frá kreppu til lífsgæða og öryggis fyrir okkur öll“ hefur fengið hjá almenningi, öðrum almannaheillasamtökum og félögum í aðildarfélögum ASÍ. 

Sambandið mun í framhaldinu kynna betur áherslur og sýn á hin fjölmörgu viðfangsefni með veffundum á næstunni. „Hvar sem við hittum félaga þá er verið að ræða spennandi hugmyndir til framtíðar þótt vissulega sé þungt fyrir fæti víða. Áhyggjur af atvinnuástandi og ekki síst sálarástandi fólks eru mikið til umræðu og oft er starfsfólk stéttarfélaga í þeirri stöðu að hlusta og hughreysta og aðstoða einstaklinga við að finna leiðir út úr erfiðleikum,“ skrifar Drífa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert