Fjúkandi trampólín skemmdi bifreið

mbl.is/Eggert

Rétt fyrir klukkan 10 í dag var lögreglu tilkynnt um fjúkandi trampólín í Hafnarfirði. Trampólínið fjúkandi olli skemmdum á einni bifreið og var síðan fjarlægt.

Þá var einnig tilkynnt um fjúkandi trampólín í Reykjavík sem sömuleiðis olli skemmdum á bifreið. Eigandi trampólínsins mun gera ráðstafanir. 

Lét greipar sópa á gistiheimili

Um klukkan 9 í morgun var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna pars sem lét greipar sópa á gistiheimili í miðborginni. Konan fannst og var mununum skilað aftur til eigenda. Þá var í hádeginu tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun í miðborginni. Skýrslutaka fór fram á vettvangi og viðurkenndi sakborningur brotið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert