Farsóttanefnd og viðbragðsstjórn hefur ákveðið hvernig haga skuli heimsóknum á Landspítala til og með 31. ágúst.
Ákvörðunin er birt á vef spítalans en reglurnar verða að óbreyttu á þennan veg út ágúst:
- Heimsóknir til sjúklinga í Fossvogi og við Hringbraut eru með þeim hætti að milli kl. 16:00 og 19:00 verður einum aðstandanda (og fylgdarmanni ef nauðsyn krefur) heimilt að heimsækja inniliggjandi sjúklinga í að hámarki eina klukkustund. Starfsfólki er heimilt að vísa fólki frá ef fleiri en einn gestur mætir í heimsókn (fylgdarmaður undanskilinn).
- Heimsóknir til sjúklinga á Landakoti og Vífilsstöðum eru með þeim hætti að milli kl. 16:00 og 19:00 er einum aðstandanda (og fylgdarmanni ef nauðsyn krefur) heimilt að heimsækja inniliggjandi sjúklinga í að hámarki eina klukkustund. Starfsfólki er heimilt að vísa fólki frá ef fleiri en einn gestur mætir í heimsókn (fylgdarmaður undanskilinn). Aðstandendur eru beðnir um að hafa samband við ritara viðkomandi legudeildar og gera áætlun um heimsóknir.
- Á Grensásdeild geta tveir gestir komið í einu í heimsókn á tímabilinu 16:00 til 20:00.
- Á líknardeild í Kópavogi eru leyfðar heimsóknir frá kl. 13:00 til 20:00. Hver sjúklingur getur að hámarki fengið fjóra í heimsókn í einu.
- Á geðdeildum við Hringbraut eru leyfðar heimsóknir eins í einu í 30 mínútur í senn frá kl. 16:00 til 19:00.
- Á Kleppi eru heimsóknir í samráði við starfsfólk viðkomandi deildar.
- Í Rjóðri eru heimsóknir í samráði við starfsfólk.
- Meðganga, fæðing og sængurlega – sjá hér
- Bráðamóttaka í Fossvogi – sjá hér
Undantekningar frá þessum heimsóknarreglum, til dæmis hvað varðar fjölda gesta, eru sagðar ávallt gerðar í samráði við starfsfólk viðkomandi deildar. Þá sé tekið mið af aðstæðum hverju sinni.