Eitt virkt smit á landamærum

Eitt virkt smit greindist við landamæraskimun.
Eitt virkt smit greindist við landamæraskimun. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Eitt virkt kórónuveirusmit greindist við skimun á landamærum Íslands í gær. Eru nú 11 virk smit á landinu, þar af tvö innanlandssmit.

Þetta segir Jóhann K. Jóhannson, upplýsingafulltrúi almannavarna, í samtali við mbl.is, en tölur á covid.is hafa ekki verið uppfærðar í dag. Ekkert smit greindist innanlands.

Tekin voru 1.694 sýni á landamærum í gær. Alls hafa nú 51.868 sýni verið tekin á landamærum og 21 þeirra greinst virkt. Þá hafa 68.866 sýni verið tekin innanlands.

Nýgengi sjúkdómsins, ný virk smit á hverja 100.000 íbúa síðustu 14 daga, er nú um 3,1. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert