Íbúar í Reykjanesbæ eru nú hvattir til að skrifa undir sáttmála um að efla hlýju og jákvæðni í samfélaginu með það sérstaklega að markmiði að styðja fólk sem reynist áskorun að taka þátt í samfélagsheildinni. Allir með! nefnist átakið og hófst undirritunin með tilkomumikilli athöfn í knattspyrnuhöllinni í bænum í gær.
Í sáttmálanum segir:
Ég mun leggja mig sérstaklega fram um að:
Hægt er að skrifa undir hér.
Í dag hafa á fimmta hundrað manns skrifað undir. En á næstunni verður heilmiklu varið til verkefnisins í samfélaginu sem hefur orðið illa úti vegna efnahagslegra afleiðinga af faraldri kórónuveirunnar. Ungmennafélögin Keflavík og Njarðvík munu leiða verkefnið áfram og stýra kynningum á öllu íþrótta- og tómstundastarfi í sveitarfélaginu. Gert er ráð fyrir að útbúin verði 70 kynningarmyndbönd um allt íþrótta- og tómstundastarf.
Í myndskeiðinu má sjá myndir sem teknar voru við undirritunina sem hleyptu átakinu af stað.
Félagsmálaráðuneytið styrkir verkefni en um 6.000 einstaklingar, eða hátt í 30% íbúa Reykjanesbæjar, munu fá fræðslu, þjálfun og menntun í gegnum verkefnið frá um 60 mismunandi starfsstöðum sem koma að barnastarfi í sveitarfélaginu. Danskennarar, skátaforingjar, barnaverndarstarfsmenn, stuðningsfulltrúar og allt þar á milli.
Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.