Neyðaráætlun Listaháskólans virkjuð

Húsnæði Listaháskólans verði að öllu óbreyttu opnað aftur á mánudag.
Húsnæði Listaháskólans verði að öllu óbreyttu opnað aftur á mánudag. Ljósmynd/LHÍ

Staðfest hefur verið smit í einu sóttvarnahólfa Listaháskóla Íslands. Neyðaráætlun skólans hefur verið virkjuð.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef skólans, en þar segir einnig að smitrakningarteymi almannavarna hafi gripið til viðeigandi ráðstafana og að þegar sé búið að hafa sambandi við alla sem málið varði.

„Viðkomandi eru komnir í sóttkví og hafa fengið fyrirmæli um sóttvarnir og önnur öryggisatriði er varða þeirra eigin heilsu. Sóttvarnarhólfið sem um ræðir verður einnig þrifið sérstaklega yfir helgina,“ segir í tilkynningunni, sem Fríða Björk Ingvarsdóttir rektor skrifar undir.

Reynir á nemendur og starfsfólk

„Af þessu tilefni vil ég enn og aftur brýna fyrir okkur öllum mikilvægi þess að fara varlega og sýna ábyrgð í okkar persónulegu smitvörnum og umgengni. Jafnfram er ítrekað að allir fundir, fyrirlestrar og viðburðir skuli fara fram með rafrænum hætti sé þess nokkur kostur og að fólk haldi sig innan sinna sóttvarnarhólfa.“

Húsnæði Listaháskólans verði að öllu óbreyttu opnað aftur á mánudag. 

„Listaháskóli Íslands er stór vinnustaður og viðbúið að grípa þurfi til ýmissa ráðstafana af og til á meðan heimsfaraldurinn stendur. Óvissan reynir bæði á nemendur og starfsfólk og því vil ég hvetja ykkur öll til að sýna slíkum ráðstöfunum tillitssemi og skilning og skapa þannig samstöðu um þær aðgerðir sem skipta okkur öll svo miklu máli.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert