Allir flokkar í samstarf á Akureyri

Blaðamannafundur stendur yfir í Hofi.
Blaðamannafundur stendur yfir í Hofi. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Allir flokkar í bæjarstjórn Akureyrar hafa komið sér saman um að starfa saman að stjórn bæjarfélagsins það sem eftir lifir kjörtímabilsins. Þetta kom fram á blaðamannafundi oddvita flokkanna í hádeginu. 

Sam­fylk­ing­in, L-listi og Fram­sókn­ar­flokk­ur hafa myndað meirihluta á Ak­ur­eyr­i frá síðustu kosn­ing­um, en flokk­arn­ir hafa hver um sig tvo bæj­ar­full­trúa; sam­an­lagt sex af ell­efu. Í minnihluta hafa verið fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þrír talsins, og fulltrúi Vinstri grænna og Miðflokksins.

Markmiðið með samstarfinu er að sögn að mynda breiða samstöðu vegna sérstakra aðstæðna í rekstri sveitarfélagsins, sem hefur verið þungur að undanförnu. Staðan sem blasir við sveitarfélaginu sé óþekkt og óhjákvæmilegt að grípa til hagræðingar í rekstri samhliða lántöku til framkvæmda.

Flokkarnir þrír, sem áður voru í minnihluta, taka við formennsku í skipulagsráði og frístundaráði bæjarins, auk formennsku í stjórnum Menningarfélags Akureyrar, Vistorku og Fallorku.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert