Unnið að viðurkenningu vottorða frá Norðurlöndum

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að senda heilbrigðisráðherrum hinna Norðurlandaþjóðanna erindi með ósk um samstarf sem miði að því að taka upp gagnkvæma viðurkenningu vottorða vegna COVID-19.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins, en málið var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.

Markmiðið með samstarfinu er að hægt verði að undanskilja einstaklinga frá kröfum á landamærum framvísi þeir viðurkenndu vottorði, t.d. um að þeir hafi sýkst af veirunni og séu ekki smitberar eða hafi myndað virkt mótefni gegn henni, að því er segir í tilkynningunni.

Sem stendur eru hér á landi einungis tekin gild íslensk vottorð þar sem staðfest hefur verið með PCR-prófi að einstaklingur hafi smitast af veirunni. Starfshópur heilbrigðisráðherra sem vinnur að gagnkvæmri viðurkenningu vottorða vinnur að því að koma á fyrirkomulagi sem gerir kleift að taka gild sambærileg erlend vottorð.

Hópurinn fylgist náið með þróun mála á vettvangi ESB þar sem niðurstöður hennar geta haft áhrif á framkvæmd landamæraaðgerða á Íslandi. 

Tilkynningin í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert