Hárgreiðslustofur loka og grímuskylda í verslunum

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögur sóttvarnalæknis.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögur sóttvarnalæknis. mbl.is/Árni Sæberg

Heilbrigðisráðherra hefur nú samþykkt tillögur sóttvarnalæknis um hertari sóttvarnaaðgerðir á höfuðborgarsvæðinu. Þetta var tilkynnt á vef Stjórnarráðsins núna í kvöld. Aðgerðirnar taka gildi á morgun og gilda til og með 19. október. Með höfuðborgarsvæðinu er átt við Reykjavík, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavog.

Hertar aðgerðir eru eftirfarandi:

  • Nálægðarmörk tveir metrar: Nálægðarmörk verða tveir metrar. Það á einnig við í öllum skólum, að undanskildum börnum fæddum 2005 og síðar.
  • Þjónusta sem krefst snertingar eða mikillar nándar: Starfsemi og þjónusta, sem krefst snertingar eða ef hætta er á snertingu milli fólks eða mikillar nálægðar, er óheimil. Þetta á við svo sem um hárgreiðslustofur, snyrtistofur, nuddstofur, húðflúrstofur og aðra sambærilega starfsemi. Framangreint á þó ekki við um starfsemi heilbrigðisstarfsfólks við veitingu heilbrigðisþjónustu en í þeim tilvikum er skylt að nota andlitsgrímur.
  • Verslanir: Viðskiptavinum verslana verður skylt að bera andlitsgrímur ef ekki er hægt að tryggja a.m.k. tvo metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
  • Sund- og baðstaðir: Sund- og baðstöðum verður lokað.
  • Íþróttir og líkamsrækt innandyra óheimil: Líkamsrækt, íþróttastarf og sambærileg starfsemi, sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu á milli fólks eða mikilli nálægð, eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér, er óheimil innandyra.
  • Íþróttir utandyra: Íþróttir utandyra eru heimilar en áhorfendur á íþróttaviðburðum utandyra skulu ekki vera fleiri en 20 í hverju rými. Áhorfendur skulu bera grímu og sitja í merktum sætum. 
  • Sviðslistir: Á viðburðum svo sem í leikhúsum, kvikmyndahúsum, á tónleikum o.þ.h. mega gestir ekki vera fleiri en 20 að hámarki. Gestir skulu allir bera grímu og sitja í merktum sætum.
  • Veitingastaðir: Þeir veitingastaðir sem mega hafa opið (krár og skemmtistaðir skulu vera lokuð) mega ekki hafa opið lengur en til kl. 21.00.

Þá verður sundkennslu fyrir börn fædd 2005 og síðar haldið úti þrátt fyrir lokun sundstaða. Einnig mun íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf fyrir börn fædd 2005 og síðar vera heimilað. Tveggja metra nándarmörk gilda ekki um börn fædd 2005 eða síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert