Segir fólk skikkað í launalausa sóttkví

Drífa Snædal, formaður Alþýðusambands íslands sendir baráttukveðjur til starfsmanna í álverunum í Straumsvík og hjá Norðuráli. Segir hún kröfur starfsmanna sanngjarnar. Starfsmenna hafa boðað til skæruverkfalla og allsherjarverkfalla. 

„Það er fullt tilefni til að senda baráttu- og stuðningskveðjur inn í þær viðræður sem nú eru í gangi innan stóriðjunnar en starfsfólk bæði hjá Norðuráli og í Straumsvík hafa boðað til verkfalla. Í Norðuráli hefjast verkföll 8. desember ef ekki tekst að semja en í fyrradag samþykktu félagar í fimm af sex stéttarfélögum í Straumsvík að hefja skæruverkföll 16. október og allsherjarverkfall 1. desember. Verkföll eru neyðarúrræði starfsfólks til að þrýsta á um kjarasamninga og það er á ábyrgð stjórnenda álveranna að mæta sanngjörnum kröfum starfsfólks sem eru í takt við það sem samið hefur verið um annars staðar. Ég hvet starfsfólk til dáða og fullvissa það um stuðning ASÍ í erfiðum deilum,“ segir Drífa. 

Fyrirtæki skerði frelsi 

Drífa minnir fólk á að sinna sóttvörnum og að samtakamáttur sé besta leiðin áfram. 

„Fréttir hafa borist af því að fyrirtæki hlutist til um hverja starfsfólk megi hitta í sínum frítíma og jafnvel að skikka fólk í launalausa sóttkví ef ekki er farið að reglum fyrirtækja umfram almenn tilmæli stjórnvalda. Slíkt er ólöglegt! Fyrirtæki geta ekki skert ferða- eða persónufrelsi umfram það sem stjórnvöld gera og ég hvet launafólk til að hafa strax samband við sitt stéttarfélag ef fyrirtæki sýna tilburði í þessa átt. Ástandið núna má ekki verða til þess að vega að mannréttindum eða að atvinnurekendur taki sér vald yfir einkalífi starfsfólks,“ segir Drífa í tilkynningu 

Drífa Snædal
Drífa Snædal ASÍ
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert