„Af fréttum síðasta sólarhrings má draga þá ályktun að ósætti sé milli Landspítala og embættis landlæknis. Nánar tiltekið að ágreiningur sé um þann farveg sem athugun á hópsmiti á Landakoti er í. Það er fjarri sanni og enginn fótur fyrir slíku,“ segir í yfirlýsingu frá Landspítala.
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, sagði í samtali við mbl.is í gær, að það ætti eftir að koma í ljós hvort kórónuveirusmitið sem kom upp á Landakoti yrði tilkynnt embættis landlæknis sem alvarlegt atvik. Ekki væri þó tímabært að hugsa um slíkt eins og staðan var þá.
Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans og formaður farsóttarnefndar Landspítala, sagðist í samtali við Morgunblaðið vera ósáttur við að landlæknir liti svo á að smit sem kom upp á Landakotsspítala sé atvik sem þurfi hugsanlega að rannsaka.
Í fyrrnefndri yfirlýsingu kemur fram að Landspítali og embætti landlæknis hafi átt náið samstarf í heimsfaraldrinum sem hafi í einu og öllu einkennst af gagnkvæmri virðingu og sameiginlegum skilningi á því umfangsmikla verkefni sem blasir við vegna COVID-19.
„Landspítali starfar nú á neyðarstigi. Vangaveltur um hugsanlega framvindu á athugun á því hópsmiti sem varð á Landakoti eru ótímabærar og mega ekki tefja það vandasama verkefni að vinna úr þeirri alvarlegu stöðu sem komin er upp. Landspítali skoðar hópsýkinguna á Landakoti með smitrakningu og nýtur í því verkefni fulltingis smitrakningarteymis almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. Það er af niðurstöðu þeirrar vinnu sem lærdómur verður dreginn. Upplýsingamiðlun um þann lærdóm verður fumlaus þegar þar að kemur.“
53 eru nú inniliggjandi á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og segir í yfirlýsingunni að íslenska heilbrigðiskerfið sé undir gríðarlegu álagi við fordæmalausar aðstæður í miðjum heimsfaraldri.
„Mikilvægt er að mannauðnum þar sé skapaður nauðsynlegur vinnufriður og veitt sú virðing sem hann á skilið. Þolinmæði og þrautseigja eru lykilatriði þegar mörk hins mögulega eru þanin til hins ýtrasta. Við þetta og margt fleira fást Landspítali og Embætti landlæknis jafnóðum allan sólarhringinn, af þolgæði og í einbeittum og samstíga takti.“