3,5 milljarða tekjufallsstyrkir til ferðaþjónustu

Ferðamenn við Seljalandsfoss í byrjun febrúar.
Ferðamenn við Seljalandsfoss í byrjun febrúar. mbl.is/Rax

Minni ferðaþjónustuaðilar, leiðsögumenn og fleiri munu geta sótt um styrk vegna tekjufalls sem varð vegna COVID-19-heimsfaraldursins, samkvæmt nýju frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um tekjufallsstyrki.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Samkvæmt mati sem ráðgjafafyrirtækið KPMG vann fyrir ráðuneytið er áætlað að stuðningur við ferðaþjónustuna vegna þessa úrræðis geti numið um 3,5 milljörðum króna.

Frumvarpið hefur verið samþykkt í ríkisstjórn og er nú til umfjöllunar á Alþingi.

Styrkirnir munu jafngilda rekstrarkostnaði (þ.m.t. reiknuðu endurgjaldi) á tímabilinu frá 1. apríl 2020 til 30. september 2020 en geta þó ekki orðið hærri en 400 þúsund krónur fyrir hvert stöðugildi á mánuði á tímabilinu.

Verði frumvarpið að lögum þurfa rekstraraðilar að uppfylla eftirtalin skilyrði:

  • Að hafa orðið fyrir minnst 50% tekjufalli á tímabilinu frá 1. apríl til 30. september 2020.
  • Að hámarki þrír launamenn starfi hjá rekstraraðila.
  • Umsækjendur þurfa að auki að uppfylla skilyrði um skattskyldu á Íslandi, lágmarksveltu, skilvísi á opinberum gjöldum og gögnum til Skattsins og áframhaldandi rekstur.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. mbl.is/Arnþór

Skilyrði um minnst 50% tekjufall

Tekjufallstyrkir geta orðið allt að 3,5 milljarðar króna ef öll fyrirtæki nýta sér þá. Upphæðin miðast við að öll félög uppfylli skilyrðin um minnst 50% tekjufall fyrir nýtingu úrræðisins. Þannig getur hámarksstyrkur til hvers fyrirtækis numið 1,2 milljónum króna á mánuði í þá 6 mánuði sem gert er ráð fyrir að úrræðið gildi, eða alls 7,2  milljónum króna.

Tekjufallsstyrkir eru liðir í efnahagsaðgerðum og viðspyrnu ríkisstjórnarinnar vegna COVID-19-heimsfaraldursins. Áður hafa verið kynntar 4,6 milljarða króna aðgerðir í þágu ferðaþjónustunnar auk almennra aðgerða ríkisstjórnarinnar fyrir rekstraraðila vegna heimsfaraldursins. Á meðal sértækra aðgerða má nefna alþjóðlegt markaðsátak, átak til að hvetja landsmenn til að ferðast innanlands, Ferðagjöf til landsmanna sem enn er hægt að nýta og afnám gistináttaskatts til ársloka 2021. Ferðaábyrgðasjóður hefur einnig verið settur á laggirnar og er umsóknarfrestur í hann til 1. nóvember næstkomandi, að því er segir í tilkynningunni.

Þá hafa almennar aðgerðir í þágu atvinnulífsins ekki síst nýst ferðaþjónustunni, samkvæmt greiningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Þar er m.a. um að ræða hlutabótaleiðina, ríkisábyrgð á hluta útlána til fyrirtækja í rekstrarvanda, greiðslur til starfsmanna í sóttkví og frestun á greiðslu opinberra gjalda fram á næsta ár.

Uppfært kl. 14.00:

Í fyrri útgáfu fréttarinnar var tímabil styrkjanna sagt 18 mánuðir. Það er hins vegar 6 mánuðir og hefur það verið leiðrétt í fréttinni en rangar tölur voru í upphaflegri tilkynningu frá ráðuneytinu. Þannig getur hámarksstyrkur til hvers fyrirtækis numið 1,2 milljónum króna á mánuði í þá 6 mánuði sem gert er ráð fyrir að úrræðið gildi, eða alls 7,2 milljónum króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert