Hundruð milljóna í hreinsunarstarf

Ríkisstjórnin mun greiða 2/3 hluta hreinsunarstarfsins.
Ríkisstjórnin mun greiða 2/3 hluta hreinsunarstarfsins. Eggert Jóhannesson

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að greiða tvo þriðju af kostnaði við hreinsunarstarf á Seyðisfirði vegna hamfaranna í síðasta mánuði en hann hleypur á hundruðum milljóna króna miðað við grófa áætlun. Þá ákvað ríkisstjórnin að veita fimm milljónum króna til björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Varðveisla menningarminja hefst 

„Starfshópi ríkisstjórnarinnar, undir forystu forsætisráðuneytisins, er ætlað að fylgja eftir málum er varða aðkomu ríkisins að hreinsun á svæðinu og öðrum aðgerðum sem styðja við að koma samfélaginu í starfhæft horf á ný.

Starfshópurinn skal stuðla að því að opinberir aðilar hefji undirbúning og framkvæmdir við að koma innviðum samfélagsins í fyrra horf og sjá til þess að aðgerðir eins og ofanflóðavarnir og uppbygging og varðveisla menningarminja hefjist.

Í starfshópnum eru fulltrúar frá dómsmálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og mennta- og menningarmálaráðuneyti,“ segir í tilkynningu.

300-600 milljónir króna 

„Ekki liggur fyrir endanleg kostnaðaráætlun en ætla má að uppgröftur og hreinsunarstarf sem nú er hafið í bænum komi til með að kosta á bilinu 300-600 milljónir en hér er aðeins um grófa áætlun að ræða varðandi tiltekna þætti hreinsunarstarfsins.

Við álíka hamfarir undangengin ár hefur ríkið greitt tvo þriðju kostnaðar við slíkar aðgerðir en sveitarfélögin hafa greitt þriðjung af þeim kostnaði sem hlýst af hamförunum. Líklega mun heildarkostnaður vegna tjónsins ekki liggja fyrir fyrr en í vor eða síðar.“

Þá segir að lagt hafi verið fram minnisblað mennta- og menningarmálaráðherra um tjón á Tækniminjasafninu og friðuðum húsum en starfshópur ríkisstjórnarinnar mun fjalla sérstaklega um menningarlegt gildi byggðarinnar.

Loks var lagt fram minnisblað umhverfis- og auðlindaráðherra um skriðuföllin, vöktun Veðurstofunnar og uppbyggingu ofanflóðavarna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert