Hugurinn leitar annað segir Unnur Brá

Unnur Brá Konráðsdóttir.
Unnur Brá Konráðsdóttir. mbl.is/Eggert

Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi, ætlar ekki að taka þátt í prófkjöri flokksins í kjördæminu. Hún greinir frá þessu Facebook. 

„Það eru forréttindi að hafa fengið að vinna í umboði kjósenda á Alþingi og ég er af öllu hjarta þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til þess. Ég tók sæti á þingi árið 2009 og sat þar í rúm átta ár. Mér hlotnaðist sá heiður að vera treyst til að gegna virðingarmesta embætti löggjafarsamkomunnar þegar ég var kjörin forseti þingsins.

Eins og þið vitið náði ég ekki kjöri árið 2017 og í mínum huga kom því lengi vel ekkert annað til greina en að halda áfram þaðan sem frá var horfið og freista þess að taka aftur öruggt þingsæti á lista flokksins fyrir næstu kosningar. En eftir því sem tímanum vindur fram finn ég að hugurinn hefur einfaldlega leitað annað.

Ég mun sakna þess mest að hitta allt fólkið sem verður á vegi þingmanna. Að njóta þeirra forréttinda að mega eiga erindi inn á vinnustaði og heimili fólks og fá beint í æð hugmyndir og upplýsingar varðandi málefni sem brenna á fólki.

Um leið og ég óska frambjóðendum flokksins í kjördæminu góðs gengis í komandi prófkjöri vona ég að sjálfstæðismenn beri gæfu til að kjósa til forystu fólk sem hefur frelsi einstaklingsins að leiðarljósi, sameinar okkur og vinnur að því að skapa okkur öllum jöfn tækifæri í þessu kröftuga kjördæmi.

Ég þakka stuðningsmönnum mínum fyrir að hafa verið samferða mér og hið ómetanlega traust og trygglyndi sem mér hefur verið sýnt í gegnum tíðina,“ segir í færslu á Facebook-síðu Unnar Brár. 

Unnur Brá var þingmaður Suðurkjördæmis 2009–2017 og varaþingmaður Suðurkjördæmis janúar til febrúar 2018, febrúar, september og október 2019. Hún var forseti Alþingis 2017.

Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi ákvað á aðalfundi sínum 6. febrúar sl. að viðhafa prófkjör við uppröðun á efstu sætum framboðslista fyrir kosningar til Alþingis haustið 2021. Prófkjörið fer fram 29. maí.

Þátttaka í prófkjörinu verður heimil öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í kjördæminu sem þar eru búsettir. Einnig þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins sem munu eiga kosningarétt í kjördæminu við kosningarnar 25. september 2021 og hafa undirritað inntökubeiðni í sjálfstæðisfélög í kjördæminu fyrir lok kjörfundar og teljast þar með komnir á flokksskrá.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert