Ung hjón unnu 21 milljón

Lottó
Lottó

Ung hjón með eitt barn og annað á leiðinni duttu í lukkupottinn á dögunum þegar lottómiðinn þeirra reyndist luma á óskiptum tvöföldum fyrsta vinningi sem hljóðaði upp á 21 milljón króna.

Konan hafði heyrt að gott væri að kaupa lottómiða fjarri heimahögum og ákvað að kaupa einn sjálfvalsmiða í Olís á Langatanga í Mosfellsbæ. Þegar hún lét fara yfir miðann eftir útdrátt fékk hún ábendingu um að fara sem fyrst á skrifstofu Íslenskrar getspár í Laugardal. Það þótti henni óþarfa umstang, enda hafði hún rekið augun í eina röð með þrjá rétta á seðlinum og taldi slíka vinninga alltaf greidda beint út.

Maðurinn hennar prófaði hins vegar að skanna miðann í nýrri útgáfu Lottóappsins og kom þá í ljós að auk þess að vera með þrjá rétta var önnur röð á seðlinum með allar tölur réttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert